Langt langt í fjarska Er lítil fögur storð Hafgrænt Ægishjarta hlýjar manni um sporð Bárurnar grænar brotna á bleikum sandi Brimhvítt löðrið brotnar á Regnbogalandi Glampandi sólskin annan grenjandi rigning hinn Svona á veðrið að vera veðurguðinn minn Skutlum okkur útí Steypumst á bólakaf Köfum í ævintýrið Stingum hina af Dreif mig til draumanna þinga Dansaði í hring mitt hjarta Ég sá hana fyrir mér hreina drifhvíta og bjarta Koparrautt var hárið og rjóð var hún í kinnum Ég kyssti rósvarir hundraðþúsund sinnum Skutlum okkur...