Nýdönsk - Í Sama Klefa lyrics

Published

0 342 0

Nýdönsk - Í Sama Klefa lyrics

Hún var ölvuð á almannafæri, lokuð inni fyrir ólæti fram að hádegi. Ég var ölvaður á almannafæri, tekinn fastur fyrir óheppni og lokaður inni með henni. Sópast að mér svartklæddir menn, pólitíið grípur mig aftur og enn. Læst inn í sama klefa, líkar það þokkalega vel, ekki hleypa okkur út. Sofum í sama klefa liggur svo ágætlega á mér, ekki hleypa okkur út. Hún var ölvuð á almannafæri, var föst uppi á húsþaki, í fáförnu úthverfi. Ég ætlaði að reyna að hjálpa henni, en festist líka á leiðinni og hékk í þakrennunni. Sópast að mér svartklæddir menn, pólitíið grípur mig ef ég renn. Læst inn í sama klefa, líkar það þokkalega vel, ekki hleypa okkur út. Sofum í sama klefa liggur svo ágætlega á mér, ekki hleypa okkur út.

You need to sign in for commenting.
No comments yet.