Hjálmar - 700 Þúsund Stólar lyrics

Published

0 394 0

Hjálmar - 700 Þúsund Stólar lyrics

Þó ég gæfi upp öndina, ófær um andardrátt framar andlit mitt gapandi í loftið sem ekkert er hjarta mitt brostið og greindin beinhvítur hamar þá barn, í huganum væri ég ávallt hjá þér. Ef veröldin snerist á hæli og léti sig hverfa hánefjuð hefði sig burt með hurðir og gler. Þá veggirnir grétu og gólfið, það myndi sverfa burtgengin spor sem enginn lengur sér. Ef lægi mitt lík í miðið og mælti eigi svo mátulegt væru slík örlög, hygði einhver. Því aldrei eins vitlaus og volaður hefði neinn tregi velkst í brjósti sem banaði sjálfum sér. En gæti ég andað á ný og með augunm skæru örlitla mæðu og stundarkorn leikið mér og gluggi og hurð á herbergisveggjunum væru og 700 þúsund stólar, ég settist hjá þér.

You need to sign in for commenting.
No comments yet.