Hjálmar - Kindin Einar lyrics

Published

0 275 0

Hjálmar - Kindin Einar lyrics

Morgunn einn ég hoppa upp í rútuna Með vasa fulla af banana. Grænum geðþekkum fasana Hafði ég í bítið ælt. Upp í sveit ég ætlaði að haldana, Í svaka partí með píuna En síðan hraktist ég leiðina, Það var klárlega sem við manninn mælt. Kindin Einar var þá við vegabrúnina Búinn að bíta upp alla túnina. Fyrir hann var og ég keyrð'ann í spað. Hann sagði dada, en meinti bada, verst var það. Það var komið langt fram að hádegi Og þá hrópaði einn farþegi Að hann færi ekki lengra ef hann feng' eigi Greyið Einar rúð og skrælt. Nú ég kvað við, hví ekki á þeim degi Barasta að bút' ann strax. Svo hreinlega velt' onum úr deigi, Grill' ann og egg með jafnvel spælt. Kindin Einar var þá við vegabrúnina Búinn að bíta upp alla túnina. Fyrir hann var og ég keyrði hann í spað. Hann sagði dada, en meinti bada, verst var það. Í því bar að bóndann á næsta bæ, Hann kom til vor og sagði hæ. Nei hvað sé ég, er þetta kindarhræ? Bætti hann við og æfur varð. Eina kind ég átti hér heima á bæ Sem að ætlaði niðrað sæ. En núna sposkur ég spranga og hlæ Því núna skuldarðu meir en nokkurn sparð. Kindin Einar var þá við vegabrúnina Búinn að bíta upp alla túnina. Fyrir hann var og ég keyrði hann í spað. Hann sagði dada, en meinti bada, verst var það. Einar var þá við vegabrúnina Búinn að bíta upp alla túnina. Fyrir hann var og ég keyrði hann í spað. Hann sagði dada, en meinti bada, verst var það. Einar var þá við vegabrúnina Búinn að bíta upp alla túnina. Fyrir hann var og ég keyrði hann í spað. Hann sagði dada, en meinti bada, verst var það.

You need to sign in for commenting.
No comments yet.