Ari Ma - Indland lyrics

Published

0 133 0

Ari Ma - Indland lyrics

[Inngangur: Ari Ma] Eftir menntaskóla fór ég beint í lögfræði Hætti eftir 2 mánuði Var týndur í lífinu Fór til Indlands að finna mig Var í 3 mánuði í sjálfboðaliðastarfi í skóla Fyrir bláfátæka krakka Og 4 mánuði að ferðast um með vini mínum Þetta var það besta sem ég hafði gert og ég kom heim Breyttur maður [Vers 1: Ari Baia] Líkt og ljón ég öskraði, þau fóru öll að hlægja Fyrir krökkunum í skólanum, var ég Ari baia "Ari baia, Ari baia!" Það þýðir Ari bróðir, ég var Ari bróðir Ég var mikils metinn og baðaður í ást Í augnalindum krakkana kærleikurinn sást Ég kenndi þeim að beatboxa, þau elskuðu það "Meira, meira!" stundum komst ekkert annað að Ég sá um íþróttir og ensku og uppskar hlátrasköll Er við settum upp leikrit um álfa, börn og tröll Kennararnir hvöttu mig með stuðningi og hrósum Líf mitt var í blóma, sannur dans á rósum Maturinn var ljúffengur og tónlistin var seyðandi Fólkið snerti sál mína með hjartaöldum freyðandi Krakkarnir svo þakklátir, ástríkir og glaðir Ef ég henti einum upp í loft mynduðust raðir Djúpt inn í hjartanu ég geymi hlátur krakkana Þau beindu mér að ástarlindinni og ég drakk' hana Ég skrifa þetta þakklátur og yndislega slakur Þau sáðu ástarfræjum sínum í minn hjartans akur Ómeðvitað þau voru öll að þjálfa mig Ég var af öllum elskaður Og lærði að elska sjálfan mig [Vers 2: Ari Ma] Svo kom Hlynur vinur minn Og við fórum tíma' okkar að sóa Með hippunum í Góa Við drukkum kókoshnetu safa til að svala Þorstanum á frumskógarströndunum í landi Guðs, Kerala Volgur sjórinn perlutær í sólargeislum glitrandi Ferðafrelsið unaðslegt í hjarta mínu titrandi Besti dagur lífs míns var dagurinn sem leið Og ennþá betri varð morgundagurinn sem beið Á syðsta punkti Indlands, Kanyakumari Kenndi mér Swami Vivekananda Að ég bæri' í brjóstinu' almáttugan anda Aurobindo kenndi mér að að anda inn í hjartað Í Auroville var margt' að skoða Við keyptum okkur mótorhjól og fórum okkur næstum Því að voða Til að auka eigin lífshorfur Hættum við við kaupin og komum okkur norður Til Gujarat þar sem við tókum tíu daga námskeið Í Vipa**ana hugleiðslu og sórum þagnareið Fjögur að morgni til byrjuðum við daginn Eftir góðan tebolla var ég klár í slaginn Með athyglina' í nefinu, við fundum andardráttinn Með endurtekningu við jukum einbeitingarmáttin Með þessu athæfi kveiktum við á rofanum Hugurinn ímyndaði sér það sem koma mun Og rifjaði upp það sem var löngu liðið Á þriðja degi fórum við að skynja orkusviðið Við ferðuðumst um líkamann frá toppi til táar Nemandi titring og frumurnar smáar Hugurinn var sífellt að hoppa til og frá Í ímyndaðar samræður hann reyndi mér að ná Höfuðmáli skipti að samþykkja það Er athyglin datt út og masið fór af stað Eftir tíu daga róður Var ég þægilega hljóður Heimurinn var góður Ég maldaði' ekki móinn Við fórum beint á ströndina, naktir í sjóinn Svo fórum við til Rajastan að dást að fögru höllunum Og héldum upp á Holi í eyðimerkur fjöllunum Í hinni heilögu borg Varanasi ég synti yfir Ganges Ég kom að landi þar sem líkin eru brennd, afar móður Túristarnir störðu' á mig og spurðu sig: Er hann óður? Þar sem Búddha öðlaðist hugljómun í Bodh Gaya Settist ég í hugleiðslu' undir tréinu fræga Svo lögðum við leið okkar upp í tinda Himalaya þar sem sjónhverfing alheimsins, blekkingin maya Birtist mér í heilögu myndunum Snjóþöktu eilífu tindunum Í Parvati dalnum var útsýnið guðdómlega ljúft Í hugleiðslu um kvöldið fór ég fáranlega djúpt Það lýsir sér í því að skynja sjálfan sig sem haf Á vald augnabliksins ég veru mína gaf Í orðalausu víddinni ekkert var á iði Ég dróg andardráttinn djúpt og synti um í friði Seytlaði um sál mína hvað ég ætti að gera Róa lýðinn niður og friðarboði' að vera Byrja inn í sjálfum mér og láta hugann ljóma Gefa öllum umhyggju, laus við alla dóma Leiftra' í hjartabylgjum og syngja ástarhljóma Leita vel að orðunum sem huga geta frelsað Helga mínu lífi því að hugleiða og elska

You need to sign in for commenting.
No comments yet.