Bráðum kemur betri tíð
með blóm í haga og bleikar kýr
sem dansa fram á nótt.
Við skulum vera góð og blíð,
því senn líður að sláturtíð
og dansa, það verður dansað.
Dansa, hvað er betra en að dansa?
Vetrarnóttin köld og dimm
en bráðum læðist sólin inn
og dansar fram á nótt.
Þá hverfa ljótar hugsanir
og hörfa allir skuggarnir
og dansa, þeir munu dansa.
Dansa, hvað er betra en að dansa?
Allt sem hvarf og allt sem dó
mun bráðum hulið undir snjó
sem dansar fram á nótt.
Allar sorgir, öll mín eymd
mun bráðum verða grafin gleymd
og dansa, við munum dansa.
Dansa, hvað er betra en að dansa.