Bjartar vonir rætast
Er við göngum bæinn
Brosum og hlæjum glaðir Vinátta og þreyta mætast
Höldum upp á daginn
Og fögnum tveggja ára bið Fjarlægur draumur fæðist Borðum og drekkum saddir
Og borgum fyrir okkur
Með því sem við eigum í dag Setjumst niður spenntir
Hlustum á sjálfa okkur slá
Í takt við tónlistina Það virðist engin hlusta Þetta er allt öðruvísi
Við lifðum í öðrum heimi
Þar sem við vorum aldrei ósýnileg Nokkrum dögum síðar
Við tölum saman á ný
En hljóðið var ekki gott Við vorum sammála um það
Sammála um flesta hluti
Við munum gera betur næst Þetta er ágætis byrjun