Vertu mér sól um nótt
Og ský á heiðum himni.
Tifaðu títt og ótt
Taumlaust í sálu minni.
Vertu eitt og allt;
Ólga í mínum æðum.
Vertu mér sól um nótt.
Ég skal vera það sem þú væntir af mér.
Ég skal vera allt sem þú væntir af mér.
Vertu mitt eina skjól
Þá er skyggja tekur.
Vertu undir vagn minn hjól.
Sú væra rödd sem vekur
Mig að morgni dags.
Á meðan vindur næðir,
Vertu mitt eina skjól.
Ég skal vera það sem þú væntir af mér.
Ég skal vera allt sem þú væntir af mér.
Þegar allt um þrýtur
Vertu glóð sem vekur eld hjá mér.
Uns þá yfir lýkur
Áttu mig ef eitthvað út af ber.
Vertu mér vin í neyð,
Vindur í segli mínu.
Varða á minni leið,
-markaðu mína línu.
Lóð á vogarskál
Minna vona og drauma.
Vertu mér vin í neyð.
Ég skal vera það sem þú væntir af mér.
Ég skal ver allt sem þú væntir af mér.