Það rofar til inn' í mér
Og lífið tekur lit
Veit nú hvað gefur mér mest
Og tilverunni glit
Aldrei var sólin svo skær
Né fugla fegurri hljóð
Mér finnst ég skilja í dag
öll heimsins ástarljóð
Þú fullkomnar mig
ég finn að ég er annar enn ég var
Þú ert við spurnum mínum lokasvar
Lyftir mér upp, lýsir mér leið
Ég vegsama þig
Og vonir mínar bind ég aðeins þér
Í blíðu jafnt sem stríðu fylgdu mér
í huga og hér, ævinnar skeið
Liðið er grafið og gleymt
Og raunir frá í gær
Loksins ég veit upp á hár
Hvað hjartað í mér slær
Og þó að ég ferðist um lönd
þú ert mín heimahöfn
Norðurljósin skrifa í kvöld
í hvolfið okkar nöfn
Þú fullkomnar mig
ég finn að ég er annar en ég var
Þú ert við spurnum mínum lokasvar
Lyftir mér upp, lýsir mér leið
Ég vegsama þig
Og vonir mínar bind ég aðeins þér
Í blíðu jafnt sem stríðu fylgdu mér
í huga og hér, ævinnar skeið
Aldrei var sólin svo skær
Né fugla fegurri hljóð
Mér finnst ég skilja í dag
öll heimsins ástarljóð