Stálfugl stormi í sem eyðir ímynduðu táli. Andans orka ný í hreyflum gegnsæjum úr stáli. Hörund hafsins í himnu augans stafir enda. Sjávarbrimið salt við sjóndeild ný og óþekkt lenda. Vænghafs vindur hvín
veitir innri sýn. Kemst á flug á hugarflug. Á fullt í fangi með að fjötra hugsanir á reiki. Í skýjastróki veð og skil ei hvað er hverfuleiki. Vænghaf vindur hvín veitir innri sýn. Kemst á hugarflug.