Það er lækur fyrir utan gluggann
Ég leik mér oft í læknum eftir kvöldmat
Eftir kvöldmat
Sem ég segi oftast
Allir ættu að hafa svona læk að leika á
Læk að leika á
Ekki er á allt kosið mamma
Allir hafa gott af að láta sig langa
Ertu orðinn leiður á mér
Leiður að hafa mig hérna kringum
Hérna í kringum þig
Með nefið ofaní þínum eigum
Gramsandi í öllum þínum föggum
Þínum föggum
Ekki er á allt kosið mamma
Allir hafa gott af að láta sig langa
Ekki skal ég erfa það við þig
þó þú sendir mig í burtu með dótið í poka
Með dótið í poka
Samt máttu vera nokkuð viss um
Nokkuð vissum að ég snúi til baka
Snúi til baka
Ekki er á allt kosið mamma
Allir hafa gott af að láta sig langa