Augnabliki áður en ég fæddist Var ég færður í tilsniðna flík Til að tryggja hvaða búningi ég klæddist Utandyra í Reykjavík Augnabliki áður en ég fæddist Var mér fært í hendur þéttskrifað blað Veit ekki hvaða villa í það slæddist Sem að færði til mín ákveðna stað Er öllu er á rönguna snúið öllu virðist vera á botninn hvolft Og allt sem var til bara búið Og gufað upp í loft Vill einhver skýra út hvað er að gerast? Hvað er að eiga sér stað? Segja mér við hvern er að sakast Svo ég viti hvað er að?
Augnabliki eftir að þú andast Og finnur loksins rétta flöt þá fyrst fer nú málið allt að vandast því þá er allt of seint að skipta um föt Og öllu er á rönguna snúið öllu virðist vera á botninn hvolft Og allt sem var til bara búið Og gufað upp í loft Vill einhver skýra út hvað er að gerast? Hvað er að eiga sér stað? Segja mér við hvern er að sakast Svo ég viti hvað er að Vill einhver skýra út hvað er að gerast? Hvað er að eiga sér stað? Segja mér við hvern er að sakast Svo ég viti hvað er að