Ef það er eitthvað að angra þig
ef eitthvað amar að (sama hvað)
stattu á fætur hnýttu á þig skóna
og drífðu þig af stað (fram gakk)
því þó að leiðin sé þyrnum stráð
við látum það ekki á okkur fá
við skulum ganga alla leið (alla leið)
ég skal segja þér leyndarmál
það er alltaf eitthvað að (þá það)
svo girtu skyrtu í brók
og gakktu svo af stað (fram gakk)
því þó að leiðin sé þyrnum stráð
við látum það ekki á okkur fá
við skulum ganga alla leið
ég er að segja ykkur það
það er alltaf eitthvað að (alltaf)
nestaðu þig upp
og arkaðu svo af stað (af stað)
því þó að leiðin sé þyrnum stráð
við látum það ekki á okkur fá
við skulum ganga alla leið